Bæjarstjórn hafnar háspennulínum i landi Sandgerðis
Bæjarstjórn Sandgerðis leggst alfarið gegn því að háspennulínur verði lagðar í gegnum land Sandgerðisbæjar. Í ályktun bæjarstjórnar segir að ekki sé hægt að sætta sig við þau umhverfisspjöll sem slík lína veldur, auk þess sem hún setji hömlur á framtíðaruppbyggingu bæjarfélagsins.
Bæjarstjórnin hafnar þeim hugmyndum Landsnets að háspennulínur verði lagðar um endilanga Miðnesheiði en línunum er ætlað að flyta raforku frá virkjunum til hugsanlegrar álverksmiðju í Helguvík. Landsnet hafði óskað eftir því við bæjaryfirvöld að fyrirhuguð lagning háspennulínu vestur fyrir flugvöllinn yrði tekin til skipulagslegrar meðferðar og lega hennar færð inn á aðalskipulag sveitarfélagsins. Því hefur bæjarstjórn nú hafnað.
Í bókun bæjarstjórnar segir að hún hafi lengi beðið eftir því að fjalla um ákvarðanir um skipulag og uppbygginu á flugsækinni starfsemi í tengslum við alþjóðaflugvöllinn í landi bæjarfélagsins.
Forsætisráðuneytið hafi nú falið bæjarfélaginu að annast skipulagningu þeirra svæða sem koma m.a. fram á teikningum Landsnets.
Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar geri engar athugasemdir við framsæknar hugmyndir nágrannasveitarfélaganna tveggja þ.e. Reykjanesbæjar og Sv. Garðs um uppbyggingu sinna iðnaðarsvæða og tengjast m.a. hugmyndum þeirra um framkvæmdir í Helguvík.
Hinsvegar sé ljóst að umrædd ósk Landsnets muni koma í veg fyrir uppbyggingu þeirra svæða sem tengjast starfsemi flugvallarins til framtíðar litið, segir í bókuninni.
Tvær aðrar leiðir eru mögulegar til að flytja raforkuna til Helguvíkur, annars vegar að leggja streng sjóleiðis frá Fitjum út í Helguvík og hins vegar með jarðstreng meðfram Reykjanesbrautinni. Þær lausnir munu vera dýrari en loftstrengur.
Meðfylgjandi mynd sýnir í grófum dráttum þá leið sem fyrirhuguð var fyrir háspennunlínu í gengum land Sandgerðis. Bæjarstjórn hefur hafnað þessum hugmyndum.