Pálmi S. Guðmundsson, Davíð Ásgeirsson og Magnús Stefánsson, nýráðinn bæjarstjóri í Garði. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Bæjarstjórinn fékk blóm
Magnús Stefánsson hefur tekið við starfi bæjarstjóra í Garði. Hann hóf formlega störf í gærmorgun. Hann sagðist í samtali við Víkurfréttir vera ánægður með að vera kominn til starfa í Garðinum og verkefnið væri spennandi. Garðurinn skartaði líka sínu fallegasta veðri þegar Magnús mætti til vinnu, logni, heiðskíru og 17 stiga hita.
Það mun örugglega taka Magnús nokkra daga að koma sér inn í málin í Garðinum en verkefnin sem bíða hans eru án efa mörg og spennandi. Þá er nýr bæjarstjóri að svipast um eftir íbúðarhúsnæði í Garði en hann ætlar sér að flytja í Garðinn og búa þar, a.m.k. á meðan hann er bæjarstjóri en samningur við hann um starf bæjarstjóra gildir í tvö ár eða til loka kjörtímabils bæjarstjórnar. Eftir það hefur hann 3ja mánaða uppsagnarfrest. Verði honum hins vegar sagt upp áður en kjörtímabilið er liðið þá fær hann sex mánaða uppsagnarfrest.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Magnús Stefánsson með myndarlegan blómvönd sem hann fékk frá bæjarfulltrúum meirihlutans í gærmorgun. Með Magnúsi á myndinni eru þeir Pálmi S. Guðmundsson frá N-lista og Davíð Ásgeirsson frá L-lista. Þær Jónína Holm og Kolfinna S. Magnúsdóttir voru báðar staddar úti á landi og gátu ekki verið viðstaddar myndatökuna.
- Fréttir | 19. júní 2013 14:43Gönguferð á Þórðarfell, Lágafell og Sandfell
- Fréttir | 19. júní 2013 10:16Nýr samningur Grindavíkurbæjar og UMFG
- Fréttir | 19. júní 2013 10:07Fyrirgefðu mér Garðvangur
- Fréttir | 19. júní 2013 09:50Greinir frá einelti sem hún varð fyrir
- Fréttir | 19. júní 2013 08:16Áki Granz færði Njarðvíkingum gjöf
- Fréttir | 19. júní 2013 07:24Páll Valur: Reynum að vera kurteis og málefnaleg þrátt fyrir hörku


