Bæjarstjóri vinnur tillögur um flóttamenn
Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs hefur samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að koma með tillögur að útfærslum á fyrirkomulagi og hlutverki sveitarfélaga við móttöku flóttamanna, sem og um kostnað og þátttöku ríkissjóðs.
Sveitarfélagið Garður hefur móttekið erindi frá Velferðarráðuneytinu þar sem ráðuneytið óskar eftir að þau sveitarfélög sem hafa áhuga á að taka á móti flóttafólki hafi samband við ráðuneytið.
Minnisblað bæjarstjóra verður lagt fyrir bæjarráð til frekari umfjöllunar, segir í gögnum bæjarráðs Garðs.