Bæjarstjóri vill koma í heimsókn
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, mun heimsækja allar stofnanir og deildir Reykjanesbæjar í janúar og febrúar til að veita bæjarbúum upplýsingar. Þessar heimsóknir standa einnig almennum vinnustöðum og hópum í Reykjanesbæ til boða.
Þeir atvinnurekendur eða forstöðumenn sem vilja fá heimsókn bæjarstjóra geta haft samband við verkefnastjóra upplýsingar- og kynningarmála hjá Reykjanesbæ í netfangið [email protected] eða síma 421-6700 til að bóka heimsókn bæjarstjóra.