Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Bæjarstjóri tilnefndur í nefnd um stöðu fölskyldunnar
Mánudagur 7. febrúar 2005 kl. 11:59

Bæjarstjóri tilnefndur í nefnd um stöðu fölskyldunnar

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tilnefnt Árni Sigfússon, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, í nefnd á vegum forsætisráðuneytis til þess að meta stöðu íslensku fjölskyldunnar og koma með tillögur í því augnamiði að styrkja stöðu hennar.Stjórn SÍS tilnefndi jafnframt í nefndina Björk Vilhelmsdóttur, borgarfulltrúa í Reykjavík.
Að auki skipa nefndina Björn B. Jónsson, tilnefndur af Ungmennafélagi Íslands, Elín Thorarensen, tilnefnd af Heimili og skóla, Fanný Gunnarsdóttir, tilnefnd af félagsmálaráðherra, Guðný Eydal, tilnefnd af menntamálaráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, tilnefnd af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, séra Ólafur Jóhannsson, tilnefndur af dóms- og kirkjumálaráðherra, Ragnheiður E. Árnadóttir, tilnefnd af fjármálaráðherra, Stefán Snær Konráðsson, tilnefndur af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og séra Þorvaldur Karl Helgason, tilnefndur af biskupi Íslands.

Formaður nefndarinnar, skipaður af forsætisráðherra, er Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður forsætisráðherra og starfsmenn nefndarinnar eru einn fulltrúi forsætisráðuneytisins og Björg Kjartansdóttir, deildarsérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu.
Skipanin kemur í framhaldi af áramótaávarpi Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra þar sem hann vék að stöðu fjölskyldunnar m.a. með þessum orðum:
„Það er bjargföst trú mín að samheldin og ástrík fjölskylda sé kjarninn í hverju þjóðfélagi. Þann kjarna þarf að styrkja og treysta og við höfum komið til móts við breyttar kröfur með fæðingarorlofi fyrir báða foreldra, sem var mikið jafnréttismál. Að sama skapi höfum við lagt áherslu á að allir geti eignast sitt eigið húsnæði. En betur má ef duga skal. Ég hef því ákveðið að setja af stað vinnu við að meta stöðu íslensku fjölskyldunnar.“
Ekki eru tímamörk á störfum nefndarinnar, sem mun hefja störf á næstu dögum, en frá þessu er greint á vefsíðu Reykjanesbæjar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024