Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Bæjarstjóri segir samning í samræmi við lög
Miðvikudagur 2. september 2009 kl. 11:03

Bæjarstjóri segir samning í samræmi við lög


Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir samning Reykjanesbæjar og HS Orku um leigu á afnotarétti auðlindar í samræmi við lög. Hann segir fullyrðingar fjölmiðla, bloggara og ráðherra um hið gagnstæða úr lausu lofti gripnar.

Yfirlýsing Árna er annars svohljóðandi:


Samningur Reykjanesbæjar í samræmi við lög

Vegna tíðra fullyrðinga í fjölmiðlum um að leiga á afnotarétti í nýtingarsamningi á auðlind milli Reykjanesbæjar og HS orku, sé lengri en lög gera ráð fyrir, er mikilvægt að hið rétta komi fram. Í því tilefni er eðlilegast að vitna beint í lög og samninga.

Alþingi samþykkti í júní 2008 lög um breytingar á orkulögum. Þessi lög voru unnin undir forystu Katrínar Júlíusdóttur sem þá var formaður iðnaðarnefndar og Össurar Skarphéðinssonar sem þá var iðnaðarráðherra. Breytingar þeirra miðuðu að því að tryggja að auðlindin yrði í opinberri eigu, ríkis eða sveitarfélaga, en unnt væri að gera nýtingarsamninga við virkjanafyrirtæki, sem gætu verið í einkaeigu. Þar er getið um nýtingarrétt til 65 ára með framlengingarrétti.
Í 11. grein laganna ( lög nr. 58 frá 7. júní 2008. 11. gr.) segir:
„ Ríki, sveitarfélögum og félögum í þeirra eigu, sbr. 3. mgr., er heimilt að veita tímabundið afnotarétt að réttindum skv. 2. mgr. til allt að 65 ára í senn. Handhafi tímabundins afnotaréttar skal eiga rétt á viðræðum um framlengingu réttarins þegar helmingur umsamins afnotatíma er liðinn.“

Í kjölfar lagasetningarinnar á Alþingi, keypti Reykjanesbær landið og gerði samning um afnotarétt við HS Orku. Í grein 3.5 í samningnum segir:
„Það er jafnframt grundvallarforsenda samnings þessa að viðræður um framlengingu afnotasamningsins munu eiga sér stað þegar helmingur þessara 65 ára er liðinn, þ.e.a.s eftir u.þ.b. 32 ár. Skulu þær viðræður taka mið af þeirri forsendu beggja aðila þessa samnings, að  HS Orka hf. eigi rétt á framlengingu réttarins eftir lok þessa samnings í samræmi við gildandi lög“.

Samningar Reykjanesbæjar  um að veita HS Orku heimild til að virkja áfram á landinu eru því nákvæmlega í anda þeirra laga sem forystumenn Samfylkingarinnar fengu samþykkt á Alþingi í fyrra.

Villandi fullyrðingar fjölmiðla, bloggara og jafnvel ráðherra um að samningurinn sé ekki í samræmi við lögin er algerlega úr lausu lofti gripið.
Þá hefur einnig verið sýnt fram á að greiðslur í auðlindasamningi milli Reykjanesbæjar og HS Orku eru umtalsvert hærri en gilda í núverandi nýtingarsamningum ríkisins.

Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar lýsti því yfir í gærkvöldi að ef ný nefnd sem ríkið hefur skipað til að fara yfir orkunýtingarsamninga leiðir til breytinga sem eru hagstæðari en núverandi samningur Reykjanesbæjar, sé fullur vilji til að endurskoða samningana í samstarfi við HS Orku hf.

Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024