Fréttir

Bæjarstjóri í veikindaleyfi
Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri í Sandgerði er farin í tímabundið veikindaleyfi.
Fimmtudagur 5. mars 2015 kl. 15:11

Bæjarstjóri í veikindaleyfi

– Elísabet og Ólafur Þór taka við verkefnum og skyldum bæjarstjóra

Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði, er komin í tímabundið veikindaleyfi frá störfum sínum.

Meirihluti bæjarráðs Sandgerðis hefur lagt það til við bæjarstjórn að við verkefnum og skyldum bæjarstjóra taki Elísabet Þórarinsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar í samræmi við framlagða greinargerð.

Guðmundur Skúlason fulltrúi B-lista lagði fram eftirfarandi bókun á fundi bæjarstjórnar í vikunni:

„Fulltrúum B-listans er fyrirmunað að skilja þá ákvörðun meirihlutans að ráða tímabundið í starf bæjarstjóra Sandgerðisbæjar á meðan núverandi bæjarstjóri er frá vegna veikinda.

Eðlilegast væri að staðgengill bæjarstjóra með aðstoð annarra sviðsstjóra sinni starfinu þennan stutta tíma“.
 

Public deli
Public deli