Bæjarstjóri fundar með íbúum í Njarðvík í kvöld
Annar íbúafundur Árna Sigfússonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, verður í kvöld. Fundurinn verður í Njarðvíkurskóla og hefst kl. 20.
Á fimmtudaginn verður svo fundur í safnaðarheimilinu í Höfnum og hefst hann einnig kl. 20
Í næstu viku fundar bæjarstjóri í Keflavík. Mánudaginn 10. maí verður hann á fundi í Holtaskóla kl. 20 og þriðjudaginn 11. maí í Heiðarskóla kl. 20.
Á fundinum verður framsaga bæjarstjóra og helstu framkvæmdir kynntar. Sérstök umræða verður um nærumhverfið á hverju svæði fyrir sig og íbúar hvattir til að taka þátt í umræðum og fyrirspurnum.
Mynd frá fyrsta íbúafundi bæjarstjóra í Innri Njarðvík sl. mánudagskvöld. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson