Bæjarstjóri fékk gönguleiðabæklinga
Kristján Pálsson formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja afhenti í dag, ásamt Ágeiri Hjálmarssyni Byggðasafnsins í Garð,i Árna Sigfússyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar fyrstu tvö eintökin af gönguleiðabæklingum um Reykjanesið.
Verkefnið hlaut 500.000 styrk úr Menningarsjóði Suðurnesja en stefnt er að því að gefa út alls 15 bæklinga um gönguleiðir á Reykjanesi. Verkefnið er unnið í samvinnu við Af stað á Reykjanesið sem staðið hefur fyrir gönguferðum um gamlar þjóðleiðir á Reykjanesi en texti og myndir voru í höndum Sigrúnar Franklín Jónsdóttur.
Fyrstu tveir bæklingarnir sem nú koma út eru um Garðsstíg og Sandgerðisveg. Hægt verður að kaupa bæklingana gegn vægu gjaldi á Upplýsingamiðstöð Reykjaness.
VF-mynd/elg: Kristján Pálsson, Árni Sigfússon og Ásgeir Hjálmarsson með nýju gönguleiðabæklingana í dag.