Bæjarstjórar undirrita þjónustusamning um málefni fatlaðra
Bæjarstjórar sveitarfélaganna á Suðurnesjum undirrituðu daginn fyrir gamlársdag þjónustusamning um málefni fatlaðra sem færðust yfir til sveitarfélaganna þann 1. janúar sl. Undirritunin fór fram í Heiðarholt skammtímaistun fyrir fatlaða í Garði og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri.
Sveitarfélögin á Suðurnesjum mynda sameiginlegt þjónustusvæði um málaflokk fatlaðra sem nú um áramótin er alfarið komin á hendi sveitarfélaganna.
Þjónustusvæðið fellur undir stjórn SSS en sérstakt þjónusturáð skipað félagsmálastjórum á svæðinu ásamt fulltrúa fatlaðra, sér um daglega umsýslu.
Samstarf þetta felur fyrst og fremst í sér samræmingu og uppbyggingu sérhæfðrar þjónustu á svæðinu.
Öll almenn þjónusta við fatlaða verður hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna, ásamt annari félagslegri þjónustu. Þannig verður best tryggt að samþætting verði sem best og viðskiptavinir þurfi ekki að fara á marga staði með erindi sín.