Fimmtudagur 5. júlí 2018 kl. 11:31
Bæjarráð Reykjanesbæjar skorar á samningsaðila
Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun lýsti ráðið yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar stöðu sem uppi er í kjaraviðræðum ljósmæðra og ríkisins.
Bæjarráð skorar á samningsaðila að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að ná samningum áður en hættuástand myndast í landinu.