Bæjarráð leggur til að skipuð verði fjárhaldsstjórn
„Þetta eru vonbrigði þar sem við vonuðum í lengstu lög að þetta yrði ekki niðurstaðan,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um þá niðurstöðu fundar bæjarráðs í morgun að leggja til við bæjarstjórn að skipuð verði fjárhaldsstjórn yfir sveitarfélagið.
Meirihluti kröfuhafa Reykjanesbæjar hafði samþykkt tillögu að samkomulagi um heildar endurskipulagningu en það dugði ekki til því samþykki þeirra var háð því að allir kröfuhafar myndu samþykkja niðurfellingu.
Næsti fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar verður haldinn þriðjudaginn 19. apríl næstkomandi og verður að öllum líkindum tekin ákvörðun um tillögu bæjarráðs þar. Kjartan Már segir ómögulegt að segja hvaða breytingum íbúar muni finna fyrir taki fjárhaldsstjórn við fjármálum sveitarfélagsins. „Innanríkisráðuneyti mun skipa fjárhaldsstjórn og hverjir verða í henni, það veit ég ekki. Hvað þá síður til hvaða ráða þeir grípa. Það verður að koma í ljós.“
Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að missa ekki gleðina, þrátt fyrir tíðindi dagsins. „Við höldum áfram að vinna að málum bæjarins. Nú er að koma sumar og engin ástæða til annars en að vera kát.“
Samþykki bæjarstjórn á fundi sínum í næstu viku að óska eftir því að fjárhaldsstjórn verði skipuð verður það í fyrsta sinn hér á landi sem slík stjórn er skipuð yfir svo fjölmennt sveitarfélag.
Eftirfarandi er fréttatilkynning frá Reykjanesbæ um niðurstöðu fundar bæjarráðs í morgun:
Eins og alkunna er hefur Reykjanesbær um langt skeið verið í viðræðum við kröfuhafa sína um mögulega niðurfærslu skulda. Þeim viðræðum er nú lokið en án samkomulags.
Hér að neðan eru bókanir sem lagðar voru fram í bæjarráði í morgun vegna þessa. Málið verður svo aftur á dagskrá bæjarstjórnar nk. þriðjudag.
Meirihluti bæjarráðs lagði fram eftirfarandi bókun:
Fjárhagsstaða Reykjanesbæjar hefur verið mjög erfið um langt skeið. Af þeim sökum hefur sveitarfélagið verið í nánu samstarfi við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga og með sérstöku samkomulagi við innanríkisráðherra, fyrst árið 2014 og aftur 2015, hefur markvisst verið unnið að úrbótum og ýmsum hagræðingaraðgerðum í rekstri. Ferli endurskipulagningar hófst í október árið 2014 með samþykkt bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á hagræðingu í rekstrarkostnaði og auknum álögum á íbúa sveitarfélagsins.
Eftir yfirferð á samþykktum áætlunum og forsendum þeirra varð ljóst að sveitarfélagið væri ekki einungis að glíma við greiðsluvanda heldur einnig verulegan skuldavanda þar sem skilyrði sveitarstjórnarlaga gera ráð fyrir að sveitarfélagið sé komið undir 150% lögbundið skuldaviðmið fyrir árslok 2022.
Ljóst þótti að til þess að komast undir lögboðið skuldaviðmið fyrir árslok 2022 þyrftu kröfuhafar að gefa eftir eitthvað af skuldum sínum. Hófust því viðræður við kröfuhafa haustið 2014 um aðkomu þeirra að endurskipulagningu sveitarfélagsins.
Samkomulag náðist þann 5. febrúar 2016 við stærstu kröfuhafa um að niðurfærsluþörf sveitarfélagsins næmi um kr. 6.350 milljónum að því gefnu að samningar næðust í frjálsum samningum og sveitarfélagið væri í stakk búið að grípa þau tækifæri sem því standa til boða. Niðurfærsluþörfin og tillaga að endurskipulagningu var svo kynnt öðrum kröfuhöfum á tímabilinu 22.-29. febrúar.
Bréf var sent til allra kröfuhafa 18. og 22. mars þar sem ferli málsins var nánar rakið ásamt öðrum atriðum. Í bréfinu var tillaga að vinnuferli kynnt sem og að það væri skýr vilji Reykjanesbæjar að leita allra leiða til að ljúka viðræðum um heildarendurskipulagningu á fjárhag sveitarfélagsins fyrir 15. apríl 2016. Jafnframt var óskað eftir því að kröfuhafar kæmu á framfæri beiðnum um frekari gögn teldu þeir sig þurfa.
Drög að samkomulagi um heildarendurskipulagningu var samþykkt í bæjarráði Reykjanesbæjar þann 7. apríl og kröfuhöfum tilkynnt að óskað væri eftir að þeir samþykktu samkomulagið fyrir kl. 17:00 miðvikudaginn 13. apríl 2016. Bæjarráð samþykkti einnig á sama fundi að óskað yrði eftir því að sveitarfélaginu verði skipuð fjárhaldsstjórn, eins og lög gera ráð fyrir, ef samkomulag við kröfuhafa næðist ekki.
Þó að meirihluti kröfuhafa, sem tillagan tók til, hafi samþykkt tillögu að samkomulagi um heildarendurskipulagningu er það ekki nægjanlegt. Viðunandi niðurstaða í viðræðunum hefur því ekki náðst. Meirihluti bæjarráð stendur því við fyrri ákvörðun sína og leggur til við bæjarstjórn Reykjanesbæjar að hún samþykki á fundi sínum þ. 19. apríl nk. að óskað verði eftir því við innanríkisráðuneytið að sveitarfélaginu verði skipuð fjárhaldsstjórn.
Að lokum vill bæjarráð þakka öllum sem lagt hafa hönd á plóg í þessari mikilvægu vinnu sem og þeim kröfuhöfum sem töldu sér fært að fara þá leið sem lagt var til að yrði farin.
Friðjón Einarsson, Davíð Páll Viðarsson og Kolbrún Jóna Pétursdóttir.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi bókun: Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítrekum skoðun okkar að hagsmunum íbúa Reykjanesbæjar sé betur borgið í höndum kjörinna fulltrúa bæjarstjórnar og bæjarstjóra en í höndum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Algjör óvissa er um hvaða áhrif sú ákvörðun mun hafa á þjónustu og rekstur sveitarfélagsins til næstu ára.
Ef ríkið sér ekki ástæðu til að standa með sveitarfélaginu gagnvart föllnu bönkunum sem það sjálft hefur notið góðs af sem og uppbyggingu í Helguvík þá teljum við réttast að það geri sjálft kröfu um yfirtöku á fjármálum sveitarfélagsins fremur en að frumkvæðið sé frá kjörnum bæjarfulltrúum í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.
Árni Sigfússon og Böðvar Jónsson