Fréttir

Bæjarráð Grindavíkur samþykkir að greiða skólagögn
Mynd af vef Grunnskóla Grindavíkur
Miðvikudagur 16. ágúst 2017 kl. 14:04

Bæjarráð Grindavíkur samþykkir að greiða skólagögn

- fylgir nágrannasveitarfélögum sínum

Á bæjarráðsfundi Grindavíkurbæjar þann 15. ágúst samþykkti bæjarráð að greiða námsgögn fyrir nemendur sína, þetta kemur fram á vef Grunnskóla Grindavíkur. Þar með bætist Grindavík í stóran hóp bæjarfélaga sem greiða niður námsgögn og ritföng fyrir nemendur.

Bæjarráð Grindavíkurbæjar hefur samþykkt að greiða námsgögn fyrir nemendur í 1.-10. bekk við Grunnskóla Grindavíkur.
Foreldrar þurfa því ekki að kaupa námsgögn, en eftir sem áður þurfa nemendur að eiga ritföng heima fyrir.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þetta kemur fram á heimasíðu Grunnskóla Grindavíkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn