Bæjarráð Grindavíkur hafnar erindi knattspyrnudeildar
Knattspyrnudeild Grindavíkur lagði fram erindi á bæjarráðsfundi í Grindavík þann 20. mars sl. um hönnun húsnæðis við Hóp og stúku sem kosta mun 237,5 milljónir kr. í byggingu. Þetta verð er samkvæmt kostnaðaráætlun og er fyrir utan hönnunarkostnað, sem áætlaður er 26 milljónir kr.
Fulltrúi B-lista tók fram í bókun sinni á fundinum að tekin hafi verið ákvörðun í fjárhagsáætlunargerð sl. haust að leggja til 110 milljónir árin 2018 - 2019 svo hægt yrði að byggja aðstöðu við Hópið sem innihéldi salerni, aðstöðu fyrir veitingasölu og skiptiklefa. Sú hönnun sem lögð var fyrir bæjarráð á fundinum sé langt umfram það sem var rætt var eða í kringum átta hundruð fermetrar og kostnaðurinn yfir 230 milljónir. „Á sama tíma og lögbundin verkefni, svo sem fræðslumál mega við því að fá viðbótarhúsnæði og aukna fjármuni til rekstrarins er ekki ásættanlegt að auka byggingarmagn á íþróttasvæðinu og rekstrarkostnað umfram það sem ákveðið var í síðustu fjárhagsáætlun.“
Fulltrúi D-lista sagði í bókun sinni að vilji sé fyrir því að halda áfram hönnunarvinnu í samræmi við tillögur knattspyrnudeildarinnar og að þó svo að hönnunarvinnan sé kláruð, þá hljóti að vera hægt að skipta verkinu upp síðar.
Fulltrúi G-lista tók undir með fulltrúa B-lista með frumkostnað á nýju mannvirki knattspyrnudeildarinnar. „26 milljón króna hönnunarkostnaður á byggingu sem er rúmlega 100% umfram þann kostnað sem settur var fram í fjárhagsáætlun er of mikill. Það er ríkur vilji G-listans að koma upp bæði salernisaðstöðu og veitingaaðstöðu ásamt því að settir verði skiptiklefar í aðstöðu knattspyrnudeildarinnar við Hópið. Sú áætlun þarf einfaldlega að vera í samræmi við fyrirliggjandi áætlun.“
Erindi knattspyrnudeildarinnar var hafnað með tveimur atkvæðum gegn einu.