Austlæg átt og væta
Á Garðskaga voru A 4 og 12,5 stiga hiti klukkan níu.
Klukkan 6 var austlæg átt, allhvöss eða hvöss syðst á landinu en mun hægari annars staðar. Skýjað var og víða dálítil rigning. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Bláfeldi
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Austan 5-10 og dálítil rigning eða skúrir. Bætir í vind í kvöld, en suðaustan 5-10 og á morgun. Hiti 10 til 17 stig.
Veðurhorfur á landinu til kl. 18 á morgun:
Austlæg átt, víða 5-10 m/s og dálítil rigning eða skúrir, en úrkomulítið N-lands. Hiti 10 til 17 stig.