Austanátt með rigningu á morgun
Hæg norðlæg og síðar vestlæg átt með morgninum, skýjað með köflum og þurrt að kalla. Vaxandi austanátt í fyrramálið, 15-20 og rigning seinnipartinn. Hiti 2 til 7 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Norðan 5-10 m/s og skýjað með köflum. Hæg norðlæg og síðar vestlæg átt er líður á daginn. Vaxandi austanátt í fyrramálið, 13-18 með ringingu síðdegis. Hiti 2 til 7 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skýjað með köflum, en úrkomulítið. Austan 8-15 og rigning síðdegis, fyrst sunnanlands. Hiti kringum frostmark inn til landsins, en annars 1 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Austan og síðan suðaustan 8-13 m/s og rigning sunnan- og austanlands, en skýjað og úrkomulítið annars staðar. Suðlægari undir kvöld. Hiti 2 til 9 stig.
Á fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag:
Útlit fyrir suðaustlæga átt með vætusömu veðri, en yfirleitt úrkomulítið norðaustanlands.