HSS
HSS

Fréttir

Austan 5-8 og léttskýjað á morgun
Mánudagur 20. nóvember 2006 kl. 09:18

Austan 5-8 og léttskýjað á morgun

Á Garðskagavita voru NA 8 og 3ja stiga hiti kl. 9.
Klukkan 6 í morgun var norðaustlæg átt, 18-23 m/s við suðausturströndina, en annars mun hægari. Skýjað var á sunnanverðu landinu, en víða bjart norðan til. Hlýjast var 6 stiga hiti á Hvammi undir Eyjafjöllum, en kaldast 9 stiga frost í Ásbyrgi.

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Norðaustan 8-13 m/s og léttir smám saman til, en austan 5-8 og léttskýjað á morgun. Frost 0 til 5 stig.
 
Veðurhorfur á landinu ásamt viðvörun !
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Viðvörun: Búist er við stormi suðaustanlands fram eftir morgni. Spá: Norðaustan 18-23 m/s suðaustanlands framan af morgni, en lægir síðan. Annars yfirleitt 8-13. Skýjað, en úrkomulítið. Norðaustan 5-13 síðdegis, en hvassari úti við austurströndina. Él norðan- og austanlands, en annars léttskýjað. Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt á morgun, en hvassari úti við sjávarsíðuna. Víða bjart veður, en stöku él með austurströndinni. Frost yfirleitt 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust með suður- og vesturströndinni.

Mynd: Frost á Fróni. Ljósm: Ellert Grétarsson

Bílakjarninn
Bílakjarninn