Aukning á starfsemi HSS
Í máli framkvæmdastjóra HSS við heimsókn Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra á dögunum komu fram samanburðartölur í rekstri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja árin 2003 og 2004. Sýndu tölurnar glögglega hve mikill uppgangur hefur verið á stofnuninni á samanburðartímanum. Eins og sjá má hér á töflunni fyrir neðan sem fengin er af vef HSS, er aukning á öllum liðum á milli ára. Mesta aukningin er á fjölda innlagna á legudeildir, en þar er aukning upp á 60% á milli ára. Aðsókn að heilsugæslu hefur aukist úr 41757 í 58045 á milli áranna sem nemur um 39%.