Bygg
Bygg

Fréttir

Aukning á nýtingu tjaldstæðis
Þriðjudagur 14. febrúar 2006 kl. 15:40

Aukning á nýtingu tjaldstæðis

Nýting tjaldsvæðis í landi Reykjanesbæjar hjá Alex, ferðaþjónustu við Aðalgötu, jókst um 21% á milli ára 2004 og 2005. Frá þessu er greint á www.reykjanesbaer.is

Fjöldi gistinátta var alls um 4200 en tjaldsvæðið var opið frá 1. júní til 15. september.

Að sögn Guðmundar Þóris Einarssonar, rekstrarstjóra Alex ferðaþjónustu sem sér um tjaldsvæðin, virðist sem ferðamenn hafi tekið þessari nýju staðsetningu fagnandi. Smáhýsi sem sett voru upp s.l. vor nýttust jafnframt mjög vel í sumar og haust.

Gestir tjaldstæðisins eru bæði Íslendingar á leið úr landi og svokallaðir „stop-over“ farþegar.

Af vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn