Auknar líkur á eldgosi
Kvikumagn undir Svartsengi heldur áfram að aukast
Líkanreikningar sýna að það magn kviku sem hljóp á laugardaginn úr Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðinni var um 1,3 milljónir rúmmetra.
Áður var búið að reikna út að um hálf milljón rúmmetra af kviku safnist fyrir undir Svartsengi á sólarhring. Að öllu óbreyttu verður heildarmagn kviku undir Svartsengi orðið um 9 milljónir rúmmetra í lok dags á morgun, þriðjudag. Þetta kemur fram í tilkynningu Veðurstofu Íslands.
Í fyrri atburðum hefur kvika hlaupið þegar heildarmagn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi er á bilinu 8 til 13 milljónir rúmmetra. Því eru auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar því magni hefur verið náð.
Það má hins vegar benda á að eftir endurtekin gos í Fagradalsfjalli þá voru dæmi um að kvika læddist upp á yfirborðið án mikillar skjálftavirkni. Reikna þarf með að það gæti orðið þróunin með virknina á Sundhnúksgígaröðinni.
- Kvikumagn undir Svartsengi heldur áfram að aukast sem gæti endað með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi
- Eldgos gæti hafist með mjög stuttum fyrirvara, jafnvel innan við 30 mínútur
- Líklegast er að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells