Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Aukin verðmætasköpun í Auðlindagarðinum á Reykjanesi á Hacking Reykjanes
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
mánudaginn 14. mars 2022 kl. 15:20

Aukin verðmætasköpun í Auðlindagarðinum á Reykjanesi á Hacking Reykjanes

HS Orka vinnur stöðugt að því að stækka Auðlindagarðinn á Reykjanesi með öflun nýrra viðskiptavina en sá nýjasti er Samherji hf. sem er að byggja stærsta fiskeldi á landi í heiminum með nýtingu grænnar orku og ylsjávar. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum í samstarfi við Hacking Hekla og öfluga aðila á Reykjanesi bjóða heimamönnum og öðrum landsmönnum á hugarflugsviðburð til að móta hugmyndir og verkefni sem styðja við sjálfbæra framtíð svæðisins 17.-19. mars.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, í góðu samstarfi við Hacking Hekla undirbúa lausnamótið Hacking Reykjanes sem fer fram dagana 17. - 19. mars. Hacking Hekla er samstarfsvettvangur og fyrsta röð lausnamóta fyrir landsbyggðina sem ferðast hringinn í kringum landið. Vettvangurinn Hacking Hekla varð til 2020 og hélt fyrsta lausnamótið á Suðurlandi það haust og í kjölfarið Hacking Norðurland vorið 2021 og Hacking Austurland haustið 2021.

Lausnamót er einskonar hugarflugsviðburður nýrra hugmynda og fer að mestu fram á netinu í gegnum samsköpunarlausnina Hugmyndaþorp. Á lausnamótinu verður markmiðið að vinna að sjálfbærri framtíð í nýtingu auðlinda á Reykjanesi og verða lagðar fram fjórar áskoranir í samstarfi við bakhjarla á svæðinu til að ná því markmiði. Í meðfylgjandi myndbandi fer Dagný Jónsdóttir, deildarstjóri Auðlindagarðs HS Orku yfir margþætta möguleika í Auðlindagarðinum.