Bygg
Bygg

Fréttir

Aukin skjálftavirkni
Mánudagur 19. ágúst 2024 kl. 10:41

Aukin skjálftavirkni

Undanfarna daga hefur verið aukning dag frá degi í fjölda skjálfta í kringum Sundhnúksgígaröðina. Um 110 skjálftar mældust í gær, 18. ágúst, en í síðustu viku voru þeir um 60 til 90 á sólarhring. Meira en 50 skjálftar hafa mælst frá miðnætti í dag, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Flestir skjálftanna sem mælast eru undir 1,0 að stærð en um helgina mældust þó tveir skjálftar yfir 2,0 að stærð. Annar þeirra var skammt austan við Sýlingarfell og hinn á milli Hagafells og Sýlingarfells. Sá síðarnefndi var 2,5 að stærð og er það stærsti skjálftinn sem hefur mælst á svæðinu frá því að síðasta eldgosi lauk.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Skjálftavirknin nú svipar mjög til skjálftavirkninnar dagana fyrir eldgosið sem hófst 29. maí.

Áfram er því líklegt að dragi til tíðinda á Sundhnúksgígaröðinni með kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi.