Bygg
Bygg

Fréttir

Aukin lántaka gegn atvinnuleysi
Miðvikudagur 14. janúar 2009 kl. 08:32

Aukin lántaka gegn atvinnuleysi



Skuldir Sandgerðisbæjar hafa aukist á árinu 2008 og svo mun einnig verða á árinu 2009. Gert var ráð fyrir um 425 milljónum króna í lántökum á árinu 2009 við fyrri umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun bæjarins fyrir 2009. Ákveðið var að  auka lántökurnar um 50 milljónir til að taka enn frekar á sjáanlegum atvinnumissi iðnaðarmanna á árinu, að því er segir í fundargerð bæjarstjórnar frá síðasta fundi þar sem fjárhagsáætlunin var samþykkt við seinni umræðu.

Því er lagt til að lántakan verði 475 milljónir til þess beinlínis að auka við verkefni hjá iðnaðarmönnum. Þessi skuldaaukning er að verulegu leiti rakin til framkvæmda við Grunnskólann í Sandgerðisbæ, segir í fundargerð.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að Sandgerðisbær hafi umtalsvert fjármagn í velferðarsjóði um áramót en gengið hefur verið á upprunalegan höfuðstól sjóðsins m.a. með greiðslu fjármagnstekjuskatts.
Bæjarstjórn samþykkti einróma að ganga að höfuðstól Velferðarsjóðs þannig að hann verði um 1.555.000.000.- um næstu áramót en muni síðan vaxa.

Bílakjarninn
Bílakjarninn