HSS
HSS

Fréttir

Mánudagur 28. maí 2001 kl. 11:37

Aukin hagkvæmni í rekstri grunnskóla

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að gengið verði til samninga um rekstur grunnskóla við skólastjóra grunnskóla, fyrir hönd grunnskóla bæjarins, frá 1. ágúst 2001 til loka skólaárs vorið 2004. Ráðið hefur falið skólamálastjóra og fjármálastjóra að ganga frá samningsdrögum um samningsstjórnun í samráði við skólastjóra grunnskóla.
Í bókun ráðsins segir að samningurinn hafi það að markmiði að auka rekstrarlegt sjálfstæði skólanna, stuðla að aukinni hagkvæmni í rekstri og skapa þannig svigrúm til umbóta í skólastarfi. Áhersla er lögð á breytt stjórnunarfyrirkomulag í samræmi við tillögur skólamálastjóra um deildarstjóra í grunnskólum þar sem kemur til aukið fjármagn til stjórnunar. Gert er ráð fyrir að skólastjórar skili til skólaráðs, nýju skipuriti fyrir hvern skóla og starfslýsingum fyrir alla stjórnendur fyrir gildistöku samningsins 1. ágúst n.k. Skólastjórar eiga einnig að skila skólamálastjóra greinargerð um þær umbætur sem skólinn vann að á árinu til skólamálastjóra.
Tillagan var samþykkt með 4. atkvæðum, Jóhann Geirdal (J) sat hjá.
Bílakjarninn
Bílakjarninn