Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Aukin hætta á kvikuhlaupi næstu daga
Hagafell. Ljósmynd: Ellert Grétarsson
Þriðjudagur 9. janúar 2024 kl. 12:26

Aukin hætta á kvikuhlaupi næstu daga

Líkanreikningar benda til þess að rúmmál kviku sem safnast hefur í kvikuinnskotið undir Svartsengi sé orðið svipað og þegar eldgos hófst 18. desember

Jarðskjálftavirkni helst nokkuð svipuð og hefur verið undanfarna daga. Enn mælist frekar lítil skjálftavirkni en hún er að mestu bundin við svæðið á milli Hagafells og Stóra Skógfells þar sem miðja kvikugangsins er staðsett. Áfram er einnig nokkur skjálftavirkni í Fagradalsfjalli og hefur hún verið viðvarandi frá 18. desember. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Landris mælist enn á svæðinu í Svartsengi sem hefur á heildina litið verið nokkuð stöðugt frá gosinu 18. desember, sbr. rauðu punktana á meðfylgjandi mynd, sem sýnir mælingu GPS stöðvarinnar SENG í Svartsengi. Land hefur risið u.þ.b. 5 mm á dag undanfarið og er hæð nú um 5 cm hærra en mældist fyrir kvikuhlaupin 10. nóvember og 18. desember síðastliðinn.

Líkanreikningar sem byggjast á aflögunarmælingum (GPS og gervihnattamyndum) benda til þess að rúmmál þeirrar kviku sem hefur safnast í lárétta kvikuinnskotið undir Svartsengi síðan 18. desember er nú orðið svipað og það magn sem hljóp þaðan og myndaði kvikuganginn sem gaus úr 18. desember síðastliðinn. Þetta þýðir að það er aukin hætta á kvikuhlaupi næstu daga.

Veðurstofan gaf út uppfært hættumatskort 5. janúar síðastliðinn og verður það endurmetið 12. janúar næstkomandi.