HSS
HSS

Fréttir

Þriðjudagur 5. september 2000 kl. 15:33

Aukið vöruúrval í BYKO

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á versluninni BYKO í Reykjanesbæ að undanförnu og sl. laugardag opnaði verslunin formlega eftir breytingar. Að því tilefni voru ýmis opnunartilboð í gangi og á laugardaginn var fjölskylduskemmtun í portinu. Þá voru grillaðar um þúsund pylsur handa gestum og gangandi. Agnar Kárason, verslunarstjóri BYKO í Reykjanesbæ, var að vonum ánægður með daginn og vill þakka viðskiptavinum frábærar móttökur. „Við ákváðum að fara út í þessar breytingar á búðinni því við erum komnir til að vera. Viðskiptavinahópurinn stækkar stöðugt og veltan eykst ár frá ári. Við leggjum nú aðal áherslu á byggingavörur og úrval og magn hefur aukist til muna“, segir Agnar. Vegna aukinna umsvifa hefur starfsfólki í versluninni fjölgað og að sögn Agnars stendur til að ráða enn fleiri til starfa á næstunni. „Við gerðum ýmsar skipulagsbreytingar á versluninni svo að aðgengi yrði betra og rýmra um vörurnar. Við höfum t.d. tengt saman timbursölu og festingadeild með nýrri hurð og á næstunni verður sett stálþak á milli húsanna. Þá geta menn gengið þurrum fótum úr bílnum og inní búð, sem er mjög þægilegt“, segir Agnar.
Bílakjarninn
Bílakjarninn