Aukatónleikar um Villa Vill á fimmtudag
-lokatónleikar söngvaskálda á Suðurnesjum
Aukatónleikar um söngvaskáldið Vilhjálm Vilhjálmsson verða haldnir í Hljómahöll n.k. fimmtudagskvöld kl. 20:00 en færri komust að en vildu á fyrri tónleikana.
Lýkur þar með tónleikaröðinni Söngvaskáld á Suðurnesjum sem fengið hefur góðar viðtökur en þar hefur verið fjallað um söngvaskáld á Suðurnesjum í samstarfi þeirra Elmars Þórs Haukssonar, Arnórs Vilbergssonar og Dagnýjar Gísladóttir.

Miðasala fer fram á hljomaholl.is og í Hljómahöll og er miðaverð kr. 3.200.