Aukatónleikar um Magnús Þór í kvöld
- Change ævintýrið, Magnús og Jóhann og hinn þjóðsöngur Íslands
Aukatónleikar um Magnús Þór verða haldnir í Hljómahöll í kvöld kl. 20:00.
Tónleikarnir eru þeir síðustu í tónleikaröðinni í ár þar sem fjallað var um Ingibjörgu Þorbergs, Þorstein Eggertsson og svo Magnús Þór en uppselt var á tónleikana um hann sl. fimmtudag.
Flytjendur eru Arnór B. Vilbergsson, Elmar Þór Hauksson og Dagný Gísladóttir.
Miðasala er á hljomaholl.is.