Aukafundir bæjarráðs vegna ráðningarmála kostuðu rúmar 400 þús. kr.
Hallfríður Hólmgrímsdóttir, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Grindavík, hefur lagt fram fyrirspurn til meirihlutans í Grindavík vegna fundargerða bæjarráðs Grindavíkur frá fundum nr. 1490 og 1491.
„Ofangreindar fundargerðir innihalda hvor um sig eitt mál, viðtöl við mögulega sviðstjóra sem sóttu um starf hjá okkur og ákvörðun um ráðningu í framhaldi af því. Þarna erum við að tala um aukafund nr. 1490 á fimmtudegi, svo annar aukafundur nr. 1491 mánudaginn eftir og í kjölfarið er haldinn fundur nr. 1492 þar sem ráðningarmál er 6. mál á dagskrá og samþykktir ráðningarsamningar við sviðsstjóra.
Einnig vekur athygli að þessar fundargerðir nr. 1490 og 1491 eru ekki birtar á vef Grindavíkur einhverra hluta vegna. Við viljum vita af hverju það voru auka bæjarráðsfundir um þessi mál í stað þess að bæjarfulltrúar eða bæjarráð hefðu verið boðaðir í viðtöl við umsækjendur svipað og var gert í ráðningu bæjarstjórans?,“ bókar Hallfríður á síðasta fundi bæjarstjórnar Grindavíkur.
Og í bókun Hallfríðar segir einnig: „Bæjarfulltrúar eru á mánaðarlaunum og þurfa ekki í hvert skipti að fá greitt fyrir hvert viðvik sem er gert. Þarna voru 2 aukafundir sem við teljum að ekki hafi þurft að boða til sem er aukakostnaður uppá rúmlega 400 þús kr.- Ef þið ætlið að vísa í lög eða reglugerðir þá vinsamlegast nefnið hvaða lög eða reglugerð á við.“ Undir þetta ritar Hallfríður Hólmgrímsdóttir, Miðflokknum.
Bókun Hallfríðar er svarað með bókun á síðasta bæjarstjórnarfundi í Grindavík þar sem segir: „Bæjarráð mun svara bókuninni á næsta bæjarráðsfundi.“