Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Auka fjarlægð milli húsa
Ný háhýsi við Pósthússtræti eins og þau voru kynnt á skipulagsþingi í Reykjanesbæ í haust.
Miðvikudagur 30. janúar 2019 kl. 10:42

Auka fjarlægð milli húsa

Fjarlægð milli húsa við Pósthússtræti 3 og 5 verður aukin til jafns við fjarlægðir milli húsa nr. 5,7 og 9. Þetta er meðal breytinga sem framkvæmdaaðili hefur lagt til til að koma til móts við andmæli nágranna. Málið er nú til meðferðar í umhverfis- og skipulagsráði Reykjanesbæjar.
 
Húsið að Pósthússtræti 5 minnkar um 60m2. Á stiga við lóðamörk verða opin rimlahandrið en ekki steypt. Bílastæðakrafa verður aukin í tvö stæði á lóð í samræmi við gildandi deiliskipulag með því að bílastæðakjallari stækkar. Reykjanesbær lætur vinna tillögur að mótvægisaðgerðum vegna vindstrengja á lóð.
 
Mannvit ehf. lagði fram erindi um skipulagsbreytingu sem kemur fram á uppdrætti dagsettum 2. júlí 2018 sem tekið var fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á fundi nr. 212 þann 12. júlí 2018. Erindið fór í grenndarkynningu og mótmæli bárust, sem var svarað og erindið samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs nr. 218, 26. október 2018. Fundur var haldinn þann 22. október 2018 með íbúum Pósthússtrætis 1 og 3. Bæjarstjórn á fundi 553 dags. 06.11.2018 vísaði málinu í bæjarráð sem á 1202 fundi dags. 17.01.2019 vísaði því aftur til umhverfis- og skipulagsráðs eftir að framkvæmdaaðili lagði fram nokkrar breytingar til þess að komast til móts við andmæli nágranna. 
 
Afgreiðsla umhverfis- og skipulagsráðs er að erindinu er frestað og óskað er eftir nánari gögnum.
Public deli
Public deli