Augýst eftir tilboðum í Hafnaveg og Nesveg á Reykjanesi

Hitaveita Suðurnesja lánar Vegagerðinni fjármagn til að flýta fyrir framkvæmdinni en að sjálfsögðu er vegurinn til mikilla bóta fyrir HS og önnur fyrirtæki sem starfa úti á Reykjanesi þar sem gríðarlegar framkvæmdir hafa verið undanfarin misseri.
Helstu magntölur verksins eru:
Bergskering 620 m3
Fylling og burðarlag 14.200 m3
Tvöföld klæðing 10.000 m2
Frágangur fláa 10.000 m2
Vegagerðin hefur líka boðið út vegkaflann frá Stað, utan Grindavíkur, að saltverksmiðjunni á Reykjanesi, en þessi vegakafli er 8,6 km á lengd og er eini ómalbikaði kafli Reykjaneshringsins. Verkinu skal lokið að fullu þann 1. september á næsta ári.
Helstu magntölur verksins eru:
Skering í laus jarðlög 36.000 m3
Bergskering 7.600 m3
Fylling og burðarlag 70.000 m3
Tvöföld klæðing 56.500 m2