Auglýsir verkefnastyrki Vaxtarsamnings Suðurnesja
Nú hefur verið auglýst eftir styrkumsóknum til Vaxtarsamnings Suðurnesja á grundvelli samnings milli Iðnaðarráðuneytis og Atvinnuþróunarráðs Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Skilyrði úthlutunar er að viðkomandi verkefni feli í sér samstarf þriggja eða fleiri fyrirtækja og falli að markmiðum samningsins sem og verklagsreglum um úthlutun. Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði einstakra verkefna, gegn mótframlagi þátttakenda.
Skilgreining á styrkhæfum kostnaði, umsóknareyðublöð og aðrar upplýsingar er að finna hér.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 mánudaginn 30. september. Umsóknum skal skilað á netfangið [email protected].
Nánari upplýsingar veitir Björk Guðjónsdóttir verkefnastjóri, [email protected], sími 420 3288.