HSS
HSS

Fréttir

Auglýsingum gegn hvalaáti verði breytt
Mánudagur 20. júní 2011 kl. 11:17

Auglýsingum gegn hvalaáti verði breytt

Isavia hefur farið fram á að Alþjóða dýraverndunarsamtök og Samtök hvalaskoðunarfélaga endurskoði auglýsingar sínar í Leifsstöð, ellegar verði þær fjarlægðar. Auglýsingarnar eru liður í átaki gegn neyslu á hvalkjöti og beint að ferðamönnum. Auglýsingarnar hafa hangið uppi frá mánaðamótum og voru samþykktar af markaðsdeild Isavia án nokkurra vandkvæða þegar þær voru settar upp, en samtökin voru með samning við Leifsstöð út sumarið. Frá þessu var greint í Fréttablaðinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Sigursteinn Másson, talsmaður dýraverndunarsamtakanna, segist ekki trúa því að Isavia ætli sér að taka niður umsamdar auglýsingar vegna þess að þeim líki persónulega ekki boðskapurinn. „Það væri mjög alvarleg ritskoðun ef þeir munu fara í það að rífa niður samþykktar auglýsingar,“ segir Sigursteinn við Fréttablaðið. „Þetta er mjög merkilegt. Mér finnst þetta lýsa sérstakri viðkvæmni hjá fyrirtækinu“.


Gunnar Bergmann, formaður hrefnuveiðimanna, kvartaði vegna auglýsinganna til forsvarsmanna Isavia. Hann er mjög ósáttur við birtingarnar og segir þær áróður gegn hvalveiðum. „Það er til skammar fyrir ferðaþjónustuna að vera að ráðast með þessum hætti á eina atvinnugrein,“ segir Gunnar. „Menn ættu frekar að starfa saman með einhverjum hætti“.


Gunnar segir það rangt að birta auglýsingarnar í Leifsstöð sem er opinber bygging. Hann segist hafa fengið mörg símtöl þar sem fólk lýsir yfir hneykslun sinni á auglýsingunum.


Friðþór Eydal, starfandi upplýsingafulltrúi Isavia, segir fyrirtækið hafa endurskoðað afstöðu sína til umræddrar auglýsingar og telur að efni hennar stangist á við stefnu fyrirtækisins í auglýsingamiðlun, segir m.a. í frétt Fréttablaðsins.


Auglýsingarnar gegn hvalaátinu eru í komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. VF-myndir: Hilmar Bragi