Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Auglýsa stöðu bæjarstjóra
Frá undirritun meirihlutasamkomulagsins nú í kvöld. VF-mynd: Hilmar Bragi
Þriðjudagur 12. júní 2018 kl. 20:31

Auglýsa stöðu bæjarstjóra

Meirihlutasamstarf D-lista og J-lista í nýju sveitarfélagi

D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra og J-listi Jákvæðs samfélags taka höndum saman um það verkefni að stýra sameiginlegu sveitarfélagi Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs kjörtímabilið 2018-2022. Samkomulag þess efnis var undirritað nú í kvöld af bæjarfulltrúum beggja framboðslista í Vörðunni í Sandgerði.
 
Samstarfið mun byggja til jafns á stefnuskrám beggja framboðslista þar sem áhersla verður lögð á að vel takist til við það verkefni að sameina tvö rótgróin samfélög í eitt. Til að það takist verður áhersla lögð á gott samstarf kjörinna fulltrúa, starfsmanna og bæjarbúa.
 
Einar Jón Pálsson, oddviti D-listans, verður forseti bæjarstjórnar og Ólafur Þór Ólafsson, oddviti J-listans, verður formaður bæjarráðs. 
 
Staða bæjarstjóra verður auglýst og ráðið í hana út frá faglegum forsendum, segir í tilkynningu sem gefin var út á fundinum.
 
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar fer fram miðvikudaginn 20. júní 2018.
 
Hér að neðan má sjá viðtal sem Víkurfréttir tóku við þá Ólaf Þór Ólafsson og Einar Jón Pálsson eftir að þeir höfðu undirritað meirihlutasamstarfið ásamt þeim bæjarfulltrúum J- og D-lista sem munu mynda meirihlutann.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024