Auglýsa eftir styrkumsóknum
Menningarráð Suðurnesja auglýsti í síðasta tölublaði Víkurfrétta eftir styrkumsóknum. Um er að ræða annars vegar verkefnastyrki og hins vegar stofn- og rekstrarstyrki.
Menningarráðið hefur ákveðið að þeir aðilar hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða og sækja um styrk til verkefna:
Verkefni milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað á Suðurnesjum.
Verkefni sem efla nýsköpun á sviði lista- og menningarstarfs.
Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
Verkefni sem styðja við samstarf í ferðaþjónustu og menningu.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur á síðu Menningarráðs Suðurnesja. Einnig eru á síðunni umsóknareyðublöð sem umsækjendum er bent á að nota. Á vefsíðu menningarráðs eru ýmsar aðrar upplýsingar sem gætu komið að gagni.
Umsóknarfrestur er til 11. mars og skal umsóknum skilað til Atvinnuþróunarfélagsins Heklunnar, Grænásbraut 506, 235 Reykjanesbæ.
Ef óskað er eftir frekari upplýsingum þá hafið samband við [email protected] eða í síma 420-3288.