Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Atvinnuuppbygging mikilvægasta verkefni Suðurnesjamanna
Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ um nýliðna helgi. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Mánudagur 14. október 2013 kl. 06:23

Atvinnuuppbygging mikilvægasta verkefni Suðurnesjamanna

Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Reykjanesbæ um nýliðna helgi telur atvinnuuppbyggingu vera mikilvægasta verkefni Suðurnesjamanna. Atvinnuleysi á landinu er mest á Suðurnesjum og því mikilvægt að allir aðilar leggist á eitt í uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu. Það þarf að vinna markvisst að framgangi álvers í Helguvík. Ekki er síður mikilvægt að huga að þeim fjölmörgu vaxtarbroddum atvinnulífsins sem víða leynast s.s. í tengslum við ferðaþjónustu og alþjóðlegan flugvöll.  Þá má ekki gleyma því að sjávarútvegur er ein af undirstöðum atvinnulífs á Suðurnesjum og tryggja þarf rekstraröryggi hans til framtíðar, segir í ályktun fundarins.

Aðalfundurinn skorar á Alþingi og ríkisstjórnina að ganga enn ákveðnar til verks þegar kemur að framgangi þeirra verkefna sem snúa að Suðurnesjum.  Fundurinn tekur undir þau sjónarmið að flytja eigi verkefni á vegum ríkisins frá höfuðborgarsvæðinu til landsbyggðarinnar og í því sambandi er rétt að benda á að Landhelgisgæslan á hvergi betur heima en á Suðurnesjum.  Þá telur aðalfundurinn það skjóta skökku við að í undirbúningi sé flutningur á hluta flugumferðarstjórnar af Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkurflugvallar.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024