Fréttir

Atvinnutekjur á Suðurnesjum hækkuðu um rúmlega 22% á árunum 2008-2016
Miðvikudagur 14. febrúar 2018 kl. 07:00

Atvinnutekjur á Suðurnesjum hækkuðu um rúmlega 22% á árunum 2008-2016

Heildaratvinnutekjur á Suðurnesjum hækkuðu um rúmlega 22% á milli áranna 2008 og 2016 en hækkunin á milli áranna 2015 og 2016 nam 18,5%. Mest af hækkun á atvinnutekjum á tímabilinu varð því á árinu 2016. Þetta kemur fram í skýrslu Byggðarstofnunar á atvinnutekjum eftir atvinnugreinum og svæðum frá árunum 2008-2016.

Á árinu 2016 voru langmestu atvinnutekjurnar greiddar í flutningum og geymslu en þar nokkuð langt á eftir komu fiskvinnsla, fræðslustarfsemi, mannvirkjagerð, verslun, iðnaður og opinber stjórnsýsla. Sömuleiðis var langmesta aukningin í flutningum og geymslum á milli áranna 2008 og 2016. Nokkur aukning varð einnig í leigu og sérhæfðri þjónustu og gistingu og veitingum. Allar þessar greinar tengjast ferðaþjónustu og hafa sterka tengingu við Keflavíkurflugvöll. Verulegur samdráttur varð í mannvirkjagerð og nokkur í fjármálastarfsemi og vátryggingum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Meðaltekjur á Suðurnesjum voru árið 2016 um 90% af landsmeðaltali. Meðaltekjur voru hæstar í Grindavík, rétt um landsmeðaltal árið 2016 og höfðu hækkað verulega frá árinu 2008. Þær voru hins vegar aðeins um 90% í Reykjanesbæ og tæplega 85% í Sandgerði, Garði og Vogum. Stærstu atvinnugreinarnar mælt í atvinnutekjum í Grindavík árið 2016 voru fiskvinnsla og fiskveiðar. Í Reykjanesbæ voru það flutningar og geymsla en í Sandgerði, Garði og Vogum voru það flutningar og geymsla og fiskvinnsla.

Skýrsluna í heild sinni má lesa hér.