Atvinnumálafundur í Stapa í dag
Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn í Reykjanesbæ í dag, mánudaginn 24. janúar. Fundurinn fer fram í Stapa kl. 17-19. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu og yfirstandandi kjaraviðræður auk þess að svara fyrirspurnum.
Atvinnuleysi á Suðurnesjum er mikið, þar voru 1.553 atvinnulausir um áramótin og hæsta hutfallslega atvinnuleysið á landinu eða 13,1% á meðan það var 8% á landsvísu. Á sama tíma blasa fjölmörg spennandi atvinnutækifæri við á Suðurnesjum sem verður að nýta.
Í dag munu Samtök atvinnulífsins funda með samninganefnd Alþýðusambands Íslands vegna komandi kjarasamninga. Á fundinum mun væntanlega skýrast hvort og með hvaða hætti ríkisstjórnin er tilbúin að koma að gerð nýrra kjarasamninga. SA kynntu nýverið ríkisstjórninni helstu áherslumál atvinnulífsins vegna samninganna, þau má nálgast í viðhengi og einnig á vef SA.
Þá munu Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls og Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku, veita stutt yfirlit um verklegar framkvæmdir sem tengjast fyrirtækjunum.
Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.
Mynd: Frá fundi um atvinnumál í Garði á síðasta ári.