Fréttir

Atvinnumálafundur í Grindavík í hádeginu
Fimmtudagur 8. október 2015 kl. 09:41

Atvinnumálafundur í Grindavík í hádeginu

Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi hafa boðað til atvinnumálafundar í Grindavík í dag. Fundurinn fer fram í Salthúsinu í Grindavík þar sem framtíð í atvinnumálum á Reykjanesi verður til umfjöllunar.

Fundurinn hefst kl. 12 með kynningu á SAR, Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi. Þá verða verkefni sem eru framundan á svæðinu kynnt. Gert er ráð fyrir að fundi verði lokið kl. 13.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024