Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 10. maí 2001 kl. 09:50

Atvinnuleysi minna en í fyrra

Atvinnuleysi á Reykjanesi er minna en á sama tíma í fyrra auk þess sem það hefur minnkað á milli mánaða.
Meðalfjöldi atvinnulausra á Reykjanesi var 86 eða 1,1% af áætluðum mannafla á Reykjanesi. Í febrúar síðastliðnum var 1,5% atvinnuleysi. Fjöldi atvinnulausra lækkaði því um 23,2% á milli mánaða. Atvinnuleysi í mars var 5,4% minna en á sama tíma í fyrra. Lílega mun fjöldi atvinnulausra í apríl vera meiri sem má rekja til gjaldþrots Thermo+ auk þess sem sjómannaverkfall spilar inn í. Endanlegar tölur fyrir apríl liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn