HSS
HSS

Fréttir

Atvinnuleysi á Suðurnesjum: 454 án atvinnu
Föstudagur 7. febrúar 2003 kl. 10:26

Atvinnuleysi á Suðurnesjum: 454 án atvinnu

Samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun eru 454 einstaklingar atvinnulausir á Suðurnesjum, 209 karlar og 245 konur. Ketill Jósepsson forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Suðurnesja sagði í samtali við Víkurfréttir að sérstök áhersla væri nú lögð á ýmis sérverkefni og starfsþjálfunarverkefni á vegum fyrirtækja. Starfsþjálfunarverkefnin ganga út á það að fyrirtæki ráða til sín starfsmann af atvinnuleysisskrá til minnst 3 mánaða og er gerð krafa um að viðkomandi starf sé ekki í neinni samkeppni við aðra starfsgrein og að þörfin fyrir starfsmanninn sé til staðar hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið greiðir laun starfsmannsins og í lok starfstímans á fyrirtækið endurkröfurétt á atvinnuleysistryggingasjóð fyrir hluta af launum starfsmanns. Ef viðkomandi starfsmaður hefur verið í 100% starfi á fyrirtækið endurkröfurétt að upphæð rúmum 77 þúsund krónum á atvinnuleysistryggingasjóð. Ketill sagðist finna fyrir auknum áhuga fyrirtækja á að nýta sér þetta fyrirtkomulag. Hann sagði að það væri mismunandi hvernig sveitarfélög á Suðurnesjum brygðust við vandanum: „Ég er virkilega ánægður með skjót viðbrögð Reykjanesbæjar, en ég hefði viljað fá meiri viðbrögð frá nágrannasveitarfélögum okkar,“ sagði Ketill í samtali við Víkurfréttir.

VF-ljósmynd: Öllum starfsmönnum BYKO - hurðir og gluggar var sagt upp skömmu fyrir áramót.
Bílakjarninn
Bílakjarninn