Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Atvinnuleysi 2,8% í mars
Föstudagur 11. apríl 2008 kl. 14:47

Atvinnuleysi 2,8% í mars



Atvinnuleysi á Suðurnesjum jókst lítillega á milli febrúar og mars, frá 2,7% upp í 2,8%. Samkvæmt skýrslu Vinnumálastofnunar fjölgaði um 5 að meðaltali á atvinnuleysisskrá á milli mánaða og voru alls 287. Atvinnuleysi á landinu í heild var óbreytt frá síðasta mánuði, eða 1,0%.

Eins og áður er atvinnuleysi mest á Suðurnesjum af öllum landshlutum.

Atvinnuleysi karla á Suðurnesjum stóð í stað og atvinnuleysi kvenna jókst úr 3,7% upp í 4,1%.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Atvinnuleysi á svæðinu er þó eilítið minna í mars þetta árið en í fyrra þegar atvinnuleysið var 2,9%.


Atvinnuleysi á Suðurnesjum í mars síðustu árin:

1999 2,0%

2000 1,3%

2001 1,1%

2002 2,4%

2003 4,8%

2004 4,3%

2005 3,1%

2006 2,2%

2007 2,9%

2008 2,8%.