Atvinnuleysi 2,7%
Atvinnuleysi á Suðurnesjum jókst lítillega á milli janúar og febrúar, frá 2,4% upp í 2,7%. Samkvæmt skýrslu Vinnumálastofnunar fjölgaði um 35 að meðaltali og voru alls 282. Atvinnuleysi á landinu í heild var 1,0%.
Eins og áður er atvinnuleysi mest á Suðurnesjum af öllum landshlutum.
Atvinnuleysi karla á Suðurnesjum fór úr 1,5% upp í 1,8% og atvinnuleysi kvenna úr 3,7% upp í 4,1%.
Atvinnuleysi á svæðinu er þó minna í febrúar þetta árið en í fyrra þegar atvinnuleysið var 3,2%.
Atvinnuleysi á Suðurnesjum í febrúar síðustu árin:
1999 2,1%
2000 1,3%
2001 1,5%
2002 2,4%
2003 5,4%
2004 4,4%
2005 3,4%
2006 2,4%
2007 3,2%
2008 2,7%.