Bygg
Bygg

Fréttir

  • Áttu gagnlegan fund með velferðarráðherra
    Björgin - Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er rekin af Reykjanesbæ í samstarfi við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum.
  • Áttu gagnlegan fund með velferðarráðherra
    Hannes Friðriksson, hollvinur Bjargarinnar.
Fimmtudagur 3. mars 2016 kl. 06:00

Áttu gagnlegan fund með velferðarráðherra

- Hópur fólks reynir að tryggja rekstur Bjargarinnar

Hollvinir Bjargarinnar, þingmenn Suðurkjördæmis og forstöðumaður Bjargarinnar áttu í gær fund með Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra og fulltrúum Velferðarráðuneytis um leiðir til að tryggja áframhaldandi rekstur Bjargarinnar - Geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja. Samkvæmt fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar er ekki gert ráð fyrir fjármagni frá bæjarfélaginu til rekstrar Bjargarinnar eftir 1. júlí næstkomandi og mun starfsemin því leggjast af að óbreyttu. Að sögn Hannesar Friðrikssonar, hollvinar Bjargarinnar, var fundurinn gagnlegur. „Ráðherrann tók erindi okkar vel og ætlar að kanna hvaða leiðir eru mögulegar til að koma að áframhaldandi rekstri Bjargarinnar. Málinu er ekki lokið en eftir þennan fund tel ég meiri ástæðu en minni til að álykta að reksturinn geti haldið áfram,“ segir hann.
 
Leitað hefur verið til ýmissa félagasamtaka um aðstoð við að halda rekstri Bjargarinnar áfram. Hannes segir viðbrögðin hafa verið góð alls staðar. „Til dæmis hefur Rauði krossinn á Suðurnesjum tekið frá tvær milljónir sem fara til rekstrar Bjargarinnar haldi hann áfram.“
 
Björgin er rekin af Reykjanesbæ í samstarfi við önnur sveitarfélög á Suðurnesjum. Björgin á í samstarfi við geðteymi á HSS, geðsvið LSH, Samvinnu, félagsþjónustur sveitarfélaganna og fleiri. Björgin var opnuð árið 2005 og hefur fjöldi þeirra sem sækja þjónustuna aukist jafnt og þétt.
 
Björgin er endurhæfingarúrræði, athvarf og þar er fólki veitt eftirfylgd eftir þörfum. Endurhæfing er einstaklingsmiðuð, haldið er utan um endurhæfingaráætlanir, fylgst með mætingu og árangur metinn. 
Bílakjarninn
Bílakjarninn