Átta vilja stjórna sjúkrahúsinu
Átta einstaklingar sóttu um stöðu framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem auglýst var laust til umsóknar í ágúst. Matsnefnd fer nú yfir umsóknirnar og skilar heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra niðurstöðu sinni. Að fenginni tillögu stjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja skipar ráðherra síðan framkvæmdastjóra til næstu fimm ára. Eftirtaldir einstaklingar sóttu um starfið:Aðalsteinn J. Magnússon, rekstrarhagfræðingur, Jónína A. Sanders, viðskiptafræðingur MBA, Óskar J. Sandholt, grunnskólafulltrúi, Sigríður Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri, Sigurður H. Engilbertsson, innheimtustjóri, Skúli Thoroddsen, lögfræðingur, Stella Olsen, skrifstofustjóri, og Valbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri.