Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Átta milljónir í styrki
Þriðjudagur 22. apríl 2014 kl. 10:57

Átta milljónir í styrki

– úr Vaxtarsamningi Suðurnesja

Vaxtarsamningur Suðurnesja hefur auglýst eftir styrkumsóknum í hluta þeirra fjármuna sem sjóðurinn hefur til úthlutunar á grundvelli samnings milli Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins og Atvinnuþróunarfélags Suðurnesja. Til ráðstöfunar eru 8 milljónir króna að þessu sinni.
 
Styrkhæf verkefni eru þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættar vöru eða þjónustu. 
 
Skilyrði úthlutunar er að viðkomandi verkefni feli í sér samstarf þriggja eða fleiri fyrirtækja og falli að markmiðum samningsins sem og verklagsreglum um úthlutun. Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði einstakra verkefna, gegn mótframlagi þátttakenda. 
 
Umsóknarfrestur er til kl. 16, miðvikudaginn 30. apríl 2014.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024