Átta milljarða kr. fjárfesting í ferðaþjónustu á 6 árum
Ferðaþjónusta var til umræðu á íbúafundi með bæjarstjóranum í Reykjanesbæ í á þriðjudagskvöld þar sem íbúar í norðurhluta keflavikur hittust í Heiðarskóla.  Í máli bæjarstjóra kom fram að fjárfesting í ferðaþjónustu á Suðurnesjum s.l. 6 ár nemi um 8 milljörðum kr. 
Þar ber hæst fjárfesting í Leifsstöð og Bláa lóninu, en einnig standa vel gerð verkefni eftir eins og Saltfisksetrið í Grindavík, Víkingaheimar, Sýningarnar í Duus húsum, Svæði Garðskagavita, brú milli heimsálfa, orkuverið jörð, bætt aðgengi að Gunnuhver,  vefmyndavél í Eldey sem hýsir stærstu súlubyggð í Evrópu  og margvíslegir göngustígar með strandlengjunni og inni á Reykjanesinu. 
Þannig eru samfélögin á Suðurnesjum vel tilbúin til að taka á móti góðu ferðamannaári, eins og spár gera ráð fyrir. Framundan er frekari fjárfesting í heilsuferðamennsku eins og heilsuþorpið að Ásbrú í Reykjanesbæ ber vitni um.




 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				