Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Átta í gæsluvarðhaldi vegna kókaínsmygls í Leifsstöð
Mánudagur 19. apríl 2010 kl. 13:02

Átta í gæsluvarðhaldi vegna kókaínsmygls í Leifsstöð

Átta manns, sjö karlar og ein kona, eru í haldi lögreglu grunuð um aðild á innflutningi kókaíns hingað til lands frá Spáni. Sjö þeirra voru í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðuð í gæsluvarðhald til 23. apríl og eitt til 30. apríl. Það eru lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum sem í sameiningu rannsaka málið en hafa við það notið aðstoðar embættis ríkislögreglustjóra og tollyfirvalda.


Fíkniefnin sem um ræðir voru falin í ferðatöskum. Fimm mannanna voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu um þar síðustu helgi en sjötti maðurinn og konan voru handtekin á Keflavíkurflugvelli á sama tímabili og var það fyrir árverkni tollvarða. Einn karl til viðbótar var handtekinn sl. fimmtudag en sá var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. apríl eins og að framan greinir. Megnið af fólkinu hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, mismikið þó. Hinir grunuðu eru allir íslenskir og á þrítugs-, fertugs-, fimmtugs- og sextugsaldri.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Rannsókn málsins er nokkuð umfangsmikil en það snýst í raun um tvær tilraunir til innflutnings á kókaíni. Í öðru tilvikinu var afhendingu fíkniefnanna fylgt eftir, þ.e. frá því að svokallað meint burðardýr kom því í hendur viðtakenda. Rannsóknin miðar jafnframt að því að tengja málin við önnur sem upp hafa komið, bæði hérlendis og erlendis, þar sem Íslendingar hafa komið við sögu. Vegna þessa hefur Europol haft aðkomu að rannsókninni. Eins og fyrr segir er rannsóknin töluvert víðtæk en í tengslum við hana hefur lögreglan framkvæmt allmargar húsleitir. Í þeim hefur verið lagt hald á umtalsverða fjármuni sem og skartgripi.