HSS
HSS

Fréttir

Átta hjólbarðar sprungu í holu á Grindavíkurvegi
Frá framkvæmdasvæði á Grindavíkurvegi. VF-mynd: Hilmar Bragi
Sunnudagur 21. október 2018 kl. 18:53

Átta hjólbarðar sprungu í holu á Grindavíkurvegi

Skemmdir urðu á að minnsta kosti fimm bifreiðum á fimmtudagskvöld eftir að þeim hafði verið ekið ofan í stóra holu á Grindavíkurvegi. Átta hjólbarðar undir bifreiðunum sprungu og ein felga var ónýt. 
 
Lögreglumenn á Suðurnesjum fóru á vettvang og reyndu eftir bestu getu að fylla í holuna. Hún var svo merkt með keilum til að fyrirbyggja skemmdir á fleiri bifreiðum. 
 
Framkvæmdir stóðu yfir á veginum og var holan talin hafa myndast í tengslum við þær.
Bílakjarninn
Bílakjarninn