Þriðjudagur 6. febrúar 2007 kl. 09:32
Átta á hraðferð
Í gærkvöldi og nótt voru átta ökumenn kærðir af Suðurnesjalögreglu fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni, þar sem hámarkshraða er 90 km/klst. Sá er hraðast ók mældist á 140 km/klst.
Einn ökumaður var í gær kærður fyrir að aka án ökuleyfis, sem hann hafði verið sviptur.